Hver er Guðrún?
Ég heiti Guðrún og er biskup Íslands
Ég er gift Einari Sveinbjörnssyni prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Linköping. Við eigum tvö börn, tengdason og tvö barnabörn.
Nám og störf
Ég útskrifaðist frá Háskóla Íslands með Cand.Theol gráðu vorið 2000 og flutti í kjölfarið til Svíþjóðar. Ég vígðist til prests í Sænsku kirkjunni, í Dómkirkjunni í Gautaborg árið 2004 af biskupnum Carl Axel Aurelius eftir nám í prestaskólanum í Lundi auk starfsþjálfunar og námi í sænskum kirkjurétti. Eftir það þjónaði ég sem prestur í tveimur söfnuðum í Gautaborg í 4,5 ár, fyrst sem prestur í eitt ár og síðan sem sóknarprestur í þrjú og hálft ár. Árið 2008 var ég valin til að þjóna sem prestur við Grafarvogssókn og átta árum síðar tók ég við embætti sóknarprests í sömu sókn.
Auk þess að þjóna í Grafarvogssókn þá kenndi ég í fjögur ár við Guðfræðideild Háskóla Íslands námskeiðið framsetning kristins boðskapar í nútíma samfélagi sem er í raun námskeið í prédikunarfræði.
Árið 2016 útskrifaðist ég með Doctor of Ministry gráðu í prédikunarfræðum frá The Lutheran School of Chicago (LSTC). Þetta er praktísk doktorsgráða sem kennd er í háskólum í Bandaríkjunum. Fyrri hluti námsins var kenndur í Uppsölum í Svíþjóð en síðari hlutinn í Chicago.
Þann 1. september 2024 þáði ég vígslu til embættis biskup Íslands í Hallgrímskirkju.
Kirkjuþing og stjórnarstörf
Ég hef átt sæti í fjölmörgum stjórnum og nefndum á vegum kirkjunnar auk stjórnar Prestafélags Íslands þar sem ég átti sæti í átta ár og gegndi þar af hlutverki varaformanns í fjögur ár. Meðal stjórna og nefnda sem ég hef átt sæti í má nefna Héraðsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis eystra, Félag prestvígðra kvenna ásamt því að vera formaður Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar um fjögurra ára skeið.
Ég var fulltrúi 1. kjördeildar vígðra á kirkjuþingi í átta ár og átti sæti í nefndum og starfshópum á vegum þingsins. Ég var formaður allsherjarnefndar kirkjuþings í fjögur ár, formaður stýrihóps um stefnumótun og fulltrúi í framtíðarhópnum sem hafði það hlutverk að skipuleggja og fylgja úr hlaði breytingum sem fylgdu undirritun viðbótarsamnings Þjóðkirkjunnar og ríkisins árið 2019 svo eitthvað sé nefnt.
Ritstörf
Árið 2020 fékk ég sex mánaða námsleyfi og dvaldi í Brisbane í Ástralíu. Maðurinn minn var í rannsóknarleyfi frá Háskóla Íslands á sama tíma og var við rannsóknir við Griffith University í sömu borg.
Í lok nóvember sama ár gaf Skálholtsútgáfa út hugleiðingabók eftir mig sem ber heitið, „Í augnhæð, hversdagshugleiðingar“. Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistakona hannaði kápu bókarinnar og öskjunnar sem kom út samhliða bókinni.
Ég hef sótt ýmis námskeið í sálgæslu í gegnum tíðina auk þess sem reynslan hefur kennt mér mikið. Ég hef leitt sorgarhópa og boðið upp á skilnaðarhópa í fjölmörg ár. Ég hef unnið mikið með fólki í tengslum við sjálfsvíg og önnur áföll og skrifað greinar í fjölmiðla um hjónaskilnaði og áföll. Þá hef ég samið fræðsluefni fyrir ýmsa hópa s.s. fermingarfræðslu.
Mannréttindi
Í starfi mínu sem sóknarprestur í Grafarvogskirkju tók ég stöðu með mannréttindabaráttu hverskyns innan kirkjunnar og utan hennar. Segja má að regnbogafáninn á kirkjutröppum Grafarvogskirkju sé tákn um það. Táknmál fánans á tröppunum er fyrst og fremst að allar manneskjur eru elskaðar af Guði og velkomnar í kirkjuna. Þar skiptir kyn, kynhneigð, kynþáttur, þjóðerni, aldur eða nokkuð annað engu máli.
Árið 2016 lagði ég, ásamt sr. Vigfúsi Bjarna Albertssyni, fram á kirkjuþingi tillögu til þingsályktunar þess efnis að ekki mætti neita samkynja pari um hjónavígslu í Þjóðkirkjunni. Tillagan var samþykkt og nú má ekki neita pörum um hjónavígslu á þeim forsendum.
Trúin ofar öllu
Fyrst og fremst á ég einlæga trú á lifandi Guð. Ég hef trú á mátt bænarinnar og er sannfærð um að við erum öll Guði falin. Ég trúi á Guð sem er upphaf alls og krafturinn að baki öllu góðu, Guð sem er hinn æðsti og mesti kærleikur sem hver manneskja getur leitað til á persónulegan hátt.
Ég trúi á Guð sem skapar og elskar allar manneskjur jafnt óháð kyni, kynþætti, kynhneigð eða nokkru öðru. Ég trúi því að Jesús Kristur hafi komið í heiminn til þess sýna okkur hvernig Guð er og til hvers er ætlast af okkur.
Ég trúi á Guð sem fyrirgefur okkur af náð sinni á hverjum degi og lít á það sem hlutverk mitt að boða þennan Guð. Þá þykir mér vænt um kirkjuna mína og hef óbilandi trú á henni sem griðastað trúar, vonar og kærleika.